Fyrri Toppi haustannar hjá Framvegis lauk föstudaginn 2. október og að þessu sinni voru það 17 þátttakendur sem luku námskeiðinu eftir sex vikna fjölbreytta og uppbyggilega dagskrá.
Toppurinn er sex vikna námskeið fyrir ungt fólk á aldrinum 18–29 ára. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur efli trú á eigin getu, styrki sjálfsmynd sína og öðlist verkfæri til að takast á við daglegt líf og rútínu. Áhersla er lögð á aukna virkni, valdeflingu og þátttöku í samfélaginu, ásamt því að hver og einn fái tækifæri til að skoða eigin styrkleika, áhugasvið og framtíðarsýn.
Dagskrá Toppsins er fjölbreytt og fléttar saman fræðslu, verkefnavinnu, umræður, hreyfingu og ýmiss konar uppbyggilega samveru. Þátttakendur fá fræðslu um fjölmarga þætti sem geta haft áhrif á líðan, heilsu og virkni í daglegu lífi. Þar má meðal annars nefna svefn, næringu, fjármál, samskipti, sjálfsmynd, markmiðasetningu og mikilvægi þess að setja sér heilbrigð mörk.
Einnig er lögð áhersla á að þátttakendur kynnist betur, myndi tengsl og fái öruggt rými til að taka virkan þátt, prófa sig áfram og deila reynslu og hugmyndum. Markmiðið er að hver og einn geti byggt ofan á eigin styrkleika og tekið skref í átt að aukinni virkni og næstu markmiðum, hvort sem þau tengjast námi, starfi eða öðrum þáttum lífsins.
Hópurinn sem lauk námskeiðinu að þessu sinni var bæði fjölmennur og fjölbreyttur. Þátttakendur sinntu námskeiðinu afar vel, tóku virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu og lögðu sitt af mörkum til að skapa góða og uppbyggilega stemningu í hópnum. Það var sérstaklega ánægjulegt að fylgjast með hópnum þróast á þessum sex vikum og sjá þátttakendur takast á við fjölbreytt verkefni, deila reynslu og styðja hver annan.
Við hjá Framvegis þökkum öllum þátttakendum kærlega fyrir samveruna og óskum þeim velfarnaðar í næstu skrefum. 💛
Næsti Toppur fer af stað hjá Framvegis mánudaginn 2. nóvember nk.