Náms- og starfsráðgjöf hjá Framvegis hjálpar fullorðnum að átta sig á möguleikum sínum, greina styrkleika sína og taka upplýstar ákvarðanir um framtíðina. Ráðgjöfin byggir á því að hver einstaklingur búi yfir reynslu, færni og hæfileikum sem hægt er að nýta til áframhaldandi náms, starfsþróunar og aukinnar vellíðanar.

Markmið okkar er að styðja þig við að finna leið sem hentar þér og efla getu þína til að stýra eigin náms- og starfsferli.
Bókaðu viðtal með því að senda tölvupóst eða hringja í 581 1900 og skoðaðu hvaða tækifæri bíða þín.
Náms- og starfsráðgjöf/fræðsla
Náms- og starfsráðgjöf og fræðsla fyrir fullorðna miðar að því að styðja einstaklinga í að taka upplýstar ákvarðanir um nám, störf og starfsþróun á mismunandi tímabilum ævinnar. Á vinnumarkaði sem tekur stöðugum breytingum verður sífellt mikilvægara að fólk geti greint eigin styrkleika, áhuga, hæfni og tækifæri og þróað með sér færni til að stýra eigin starfsferli.

Horft til kenninga og líkana um starfsþróun sem leggja áherslu á að starfsferill sé ævilangt ferli. Þar má meðal annars nefna starfsþróunarlíkan Kanada (Career Development Model) sem lítur á starfsþróun sem samspil náms, vinnu og lífshlutverka einstaklings yfir ævina. Einnig er stuðst við DOTS líkanið sem leggur áherslu á fjóra lykilþætti: sjálfsþekkingu (Decision learning), tækifæravitund (Opportunity awareness), ákvarðanatöku (Transition learning) og færni til að takast á við breytingar og umbreytingar í námi og starfi (Self awareness).
Mikil áhersla er einnig lögð á leikni í stjórn á eigin starfsferli (Career Management Skills – CMS). CMS felur í sér að einstaklingar þrói með sér hæfni til að safna upplýsingum, meta eigin stöðu, setja sér markmið, taka ákvarðanir og aðlagast breytingum á vinnumarkaði og í lífinu almennt. Slík færni styrkir einstaklinga í að taka virkan þátt í eigin starfsþróun og auka líkur á vellíðan, þátttöku og árangri í námi og starfi.
Náms- og starfsráðgjafar vinna með ofantalið og meira til þar sem ráðgjöfin eða fræðslan er alltaf sniðin að ráðþeganum.
Starfsleit
Tenglar innan framvegis.is:
Starfsauglýsingar - athugið að listinn er alls ekki tæmandi
Gagnlegar síður í starfsleit:
Áhugi og styrkleikar hafa mikil áhrif á vellíðan og árangur í námi og starfi. Því er mikilvægt að velja sér vettvang sem fellur sem best að áhugasviði og hæfni hvers og eins.
Það getur þó reynst flókið að tengja áhuga og hæfileika við nám eða störf. Þar geta áhugasviðskannanir og náms- og starfsráðgjöf komið að góðum notum.
Framvegis býður upp á Bendil IV áhugasviðskönnun sem er sérstaklega hönnuð fyrir fólk á vinnumarkaði. Náms- og starfsráðgjafar Framvegis leggja könnunina fyrir og fara yfir niðurstöður með einstaklingum.
Styrkleikar
Styrkleikar eru jákvæðir eiginleikar og persónulegir styrkleikar sem búa innra með okkur öllum, til dæmis forvitni, þrautseigja, góðvild, hugrekki og sköpunargáfa. Þegar við þekkjum okkar helstu styrkleika betur eigum við auðveldara með að nýta þá í námi, starfi og daglegu lífi.
Framvegis býður upp á styrkleikagreiningu út frá VIA líkaninu þar sem einstaklingar fá tækifæri til að greina sína helstu styrkleika og skoða hvernig hægt er að nýta þá markvisst. Að vinna með styrkleika getur aukið sjálfstraust, trú á eigin getu og vellíðan og hjálpað fólki að finna leiðir sem henta hæfileikum þess, áhuga og markmiðum.
Sjá nánar hér
Náms- og starfsráðgjafi er Helga Tryggvadóttir helga@framvegis.is og ráðgjafi er Soffía Svanhildar Felixdóttir soffia@framvegis.is.