Markviss

Hjá Framvegis starfa markviss ráðgjafar sem sinna ráðgjöf til fyrirtækja og stofnana. Ráðgjöfin er fólgin í því að greina þarfir þeirra fyrir fræðslu og hæfni starfsmanna og stuðla þannig að eflingu og þróun mannauðs. Lögð er sérstök áhersla á að stjórnendur fyrirtækja og starfsmenn vinni saman að þeirri uppbyggingu sem þörf er á innan fyrirtækja. 

Fræðslustjóri að láni

Auk þess tekur Framvegis þátt í verkefninu fræðslustjóri að láni sem felst í því að lána mannauðsráðgjafa til fyrirtækja og stofnana. Fræðslustjóri að láni er árangursmiðað verkfæri sem miðar að því að samhæfa og nýta lausnir sem þegar eru til, ýmist innan fyrirtækjanna og/eða hjá símenntunarstöðvum eða öðrum fræðsluaðilum.

Ef þitt fyrirtæki hefur áhuga hafðu þá samband í framvegis@framvegis.is eða í síma 581 1900.