Hjá Framvegis er lögð áhersla á að skapa hvetjandi og öruggt námsumhverfi fyrir öll. Eftirfarandi eru réttindi og skyldur sem gilda um alla námsmenn hjá Framvegis.
Ábendingar og kvartanir
Námsmenn hafa rétt á að koma á framfæri ábendingum og kvörtunum um nám og þjónustu Framvegis. Leita má til leiðbeinanda, verkefnastjóra eða framkvæmdastjóra og lögð er áheyrsla á að leysa úr málum með skjótum hætti í réttum farvegi.
Persónuvernd
Framvegis fer með persónuupplýsingar nemenda samkvæmt lögum nr. 90/2018. Hægt er að nálgast persónuverndarstefnu framvegis hér.
Réttindi varðandi nám og kennslu
- Skýrar upplýsingar um námið. Í upphafi náms eru markmið og hæfniviðmið kynnt fyrir námsmönnum með kennsluáætlun.
- Fagleg kennsla og endurgjöf. Framvegis gerir hæfnikröfur til leiðbeinenda og leggur áherslu á fjölbreyttar kennslu- og námsmatsaðferðir sem henta fullorðnum námsmönnum.
- Virðing og uppbyggileg samskipti. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu og fagleg samskipti milli námsmanna, leiðbeinenda og starfsfólks. Sama viðmið gildir í staðnámi, fjarnámi og rafrænum samskiptum.
- Námsumhverfi og stuðningur. Framvegis leitast við að veita viðeigandi stuðning vegna hagnýtra þátta og hindrana í námi. Námsmenn eru hvattir til að ræða stuðningsþarfir sínar við verkefnastjóra eða náms- og starfsráðgjafa.
- Ábendingar og mat á námi. Námsmenn geta komið skoðunum sínum, ábendingum og kvörtunum á framfæri. Þeim gefst einnig tækifæri til að meta nám og kennslu. Endurgjöfin er nýtt til að bæta þjónustu og þróa námsframboð.
- Staðfesting við námslok. Við námslok fá námsmenn staðfestingu þar sem fram kemur hvort þeir hafi staðist hæfniviðmið námsins. Upplýsingar um námsárangur og námslok eru skráðar í INNU.
Réttindi varðandi náms- og starfsráðgjöf
Námsmenn hafa greiðan aðgang að náms- og starfsráðgjöf hjá Framvegis. Ráðgjöfin styður við náms- og starfsþróun ráðþega.
- Gjaldfrjáls ráðgjöf. Einstaklingar sem falla undir lög um framhaldsfræðslu hafa rétt á aðgengi að faglegri náms- og starfsráðgjöf sér að kostnaðarlausu.
- Sveigjanlegt aðgengi fyrir fjarnema. Fjarnemendur geta fengið náms- og starfsráðgjöf í gegnum fjarfundabúnað (t.d. Teams eða Zoom) eða í gegnum síma.
- Trúnaður og persónuvernd. Öll samtöl við náms- og starfsráðgjáfa eru bundin trúnaði. Unnið er með persónuupplýsingar í ströngu samræmi við persónuverndarlög.
- Einstaklingsbundinn stuðningur. Námsmenn geta fengið aðstoð við að skipuleggja námið, setja þér markmið, skoða næstu skref í starfi eða fá ráðgjöf og úrræði vegna námserfiðleika.
Réttindi varðandi raunfærnimat
Raunfærnimat er ferli þar sem þekking og reynsla úr atvinnulífinu er metin til eininga á móti námskrám framhaldsskóla.
- Sanngjarnt og hlutlægt mat. Þátttakandi á rétt á að fagaðilar meti þekkingu, færni og reynslu úr starfi á hlutlægan hátt, óháð því hvernig hennar var aflað.
- Leiðbeining, stuðningur og gagnsæi. Þátttakendur eiga rétt á skýrum upplýsingum frá ráðgjafa í gegnum allt ferlið og skriflegri staðfestingu á niðurstöðum þegar matinu lýkur.
Skyldur og ábyrgð nemenda
Til þess að stuðla að góðu námsumhverfi væntum við þess að námsmenn:
- Taki ábyrgð á þátttöku sinni. Mæti tímanlega, fylgist með tilkynningum og uppfylli kröfur viðkomandi náms um mætingu, virkni og verkefnaskil. Tilkynni forföll.
- Sýni virðingu og kurteisi. Komi fram við samnemendur, leiðbeinendur og starfsfólk af virðingu, bæði á staðnum og í rafrænum samskiptum.
- Gangi vel um. Fari vel með húsnæði, búnað og önnur gögn sem þeim eru látin í té.
Starfsemi Framvegis byggist á lögum nr. 27/2010 um framhaldsfræðslu, reglugerð nr. 1163/2011 og viðurkenndum gæðaviðmiðum framhaldsfræðslunnar og byggja þessi réttindi á þeim ásamt lögum 90/2018 um persónuvernd.