Skilmálar vegna skráninga á námskeið

Krafa vegna námsgjalda er send í heimabanka nemenda eftir að námskeið hefst.

Með mætingu á námskeið skuldbindur nemandi sig til þátttöku og samþykkir að greiða námsgjaldið að fullu, óháð því hvort hann ljúki námskeiðinu eða ekki.
Námsgjöld eru því ekki endurgreidd eftir að nemandi hefur mætt til náms.

Forföll skal tilkynna til Framvegis með tölvupósti á netfangið framvegis@framvegis.is eigi síðar en 24 klukkustundum áður en námskeið hefst.
Tilkynningar sem berast eftir þann tíma teljast ekki gildar og fellur réttur til endurgreiðslu þá niður.

Fyrir íslenskunámskeið: 

Sé greiðandi annar aðili en nemandi ber nemandinn ávallt ábyrgð á að athuga rétt sinn hjá þeirri stofnun áður en námskeið hefst. Neiti stofnun greiðslu fyrir námskeiðið ber nemandi ábyrgð á greiðslunni.