Framvegis bauð í október upp á nýtt námskeið í símenntun sjúkraliða, Tilfinningagreind í starfi sjúkraliða – Herramennirnir – Hver ert þú og hver mætir þér? Námskeiðið var kennt bæði í staðnámi og fjarnámi.

Leiðbeinandi námskeiðsins var Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir, félags- og vinnusálfræðingur og framkvæmdastjóri Hugarheims ehf. Á námskeiðinu fjallaði hún um tilfinningagreind og áhrif hennar á líðan, hegðun og samskipti í starfi sjúkraliða.

„Herramennirnir“ voru notaðir á lifandi og skemmtilegan hátt til að skoða ólík persónueinkenni og hegðunarmynstur. Þátttakendur fengu þannig tækifæri til að spegla sjálfa sig og velta fyrir sér þeim ólíku einstaklingum sem þeir mæta í starfi sínu – hver ert þú og hver mætir þér?

Áhersla var meðal annars lögð á sjálfsvitund, samkennd, mörk og uppbyggileg samskipti og hvernig aukinn skilningur á eigin viðbrögðum og annarra getur nýst í daglegu starfi sjúkraliða.

Hvaða Herramaður ert þú?

Ragnheiður Guðfinna mætti í Bítið á Bylgjunni, þar sem hún ræddi um tilfinningar og tilfinningagreind – og Herramennirnir fengu að sjálfsögðu að fylgja með. Viðtalið ber einmitt yfirskriftina „Hvaða Herramaður ert þú?“ visir.is

Hlustaðu á viðtalið „Hvaða Herramaður ert þú?“ á Vísi