Þessa dagana fer Landneminn á arabísku fram hjá okkur í Framvegis. Í síðustu viku brá hópurinn sér aðeins út fyrir kennslustofuna og heimsótti FlyOver Iceland ásamt Sonju, leiðbeinanda námskeiðsins.
Þar fengu þátttakendur tækifæri til að upplifa Ísland frá allt öðru sjónarhorni og ferðast á skemmtilegan hátt um landið. Óhætt er að segja að heimsóknin hafi slegið í gegn hjá hópnum, enda voru þátttakendur hæstánægðir með upplifunina og skemmtu sér konunglega.
Landneminn er samfélagsfræðsla fyrir fullorðna innflytjendur á Íslandi. Markmið námsins er að veita þátttakendum hagnýta þekkingu á íslensku samfélagi og styðja þá við að fóta sig í daglegu lífi hér á landi.
Í náminu er fjallað um fjölbreytta þætti íslensks samfélags, meðal annars menningu og samfélag, atvinnulíf, heilbrigðismál, menntun, fjölskyldumál, réttindi og skyldur, lýðræði og velferðarkerfið. Áhersla er lögð á að þátttakendur kynnist betur þeim réttindum, tækifærum og skyldum sem fylgja búsetu á Íslandi og öðlist þekkingu sem nýtist þeim í daglegu lífi.
Landneminn er jafnframt vettvangur fyrir samtal og umræður þar sem þátttakendur fá tækifæri til að spyrja spurninga, ræða ólíka þætti íslensks samfélags og tengja námsefnið við eigin reynslu og aðstæður.
Vettvangsferðir eru skemmtileg leið til að brjóta upp hefðbundna kennslu og gefa þátttakendum tækifæri til að kynnast Íslandi og íslensku samfélagi með öðrum hætti. Heimsóknin í FlyOver Iceland var svo sannarlega vel heppnuð og ekki annað að sjá en að hópurinn hafi notið ferðarinnar í botn.