Þessa dagana fer námskeiðið Landneminn fram á arabísku hjá okkur hjá Framvegis og í síðustu viku skelltu nemendur sér í dagsferð um Suðurland ásamt leiðbeinanda sínum henni Sonju. Mikil gleði og ánægja var með ferðina og var þetta í fyrsta sinn sem sum þeirra fóru út fyrir höfuðborgarsvæðið. Hópurinn stoppaði meðal annars í Efstadal þar sem hann gæddu sér á vörum þaðan, skoðuðu auðvitað Gullfoss og Geysi, fór í Friðheima og kíkti á Kerið. Þetta var virkilega skemmtileg og lærdómsrík ferð og sýnir og sannar að nám og fræðsla getur farið fram við alls kyns ólíkar aðstæður.
Þessi flotti hópur hefur undanfarnar vikur sinnt námskeiðinu vel og lært ýmislegt um íslenskt samfélag og munu þau klára námskeiðið seinna í þessari viku.