Námskráin Uppleið – nám byggt á hugrænni atferlismeðferð lýsir námi sem ætlað er að ná til þeirra einstaklinga innan markhóps framhaldsfræðslu sem síst afla sér menntunar og greiða leið þeirra til áframhaldandi náms og virkni með hvatningu og sjálfstyrkingu að leiðarljósi. Markmiðið er að auka færni námsmanna til að takast á við hamlandi líðan með því að nýta sér aðferðir hugrænnar atferlismeðfarðar (HAM) í daglegu lífi og breyta þannig hugsun, tilfinningum og hegðun og í kjölfarið viðhalda betri líðan. í námskránni er einnig að finna skimunarferli fyrir þunglyndi og kvíða sem mælt er með að notað verði áður en námið fer af stað.
Heildarlengd námsins eru 40 klukkustundir og kennt er í litlum hópum
Námskráin var unnin af Framvegis og voru helstu samstarfsaðilar Reykjalundur, SÍBS og Þjónustumiðstöð Breiðholts.
Við höfum góða reynslu af því að kenna námskrána og er áhugasömum, hvort sem er einstaklingum, fyrirtækjum eða stofnunum frjálst að hafa samband við okkur.
Krækja á námskrána Uppleið