Fyrr í vikunni luku 14 nemendur námi á Stökkpalli hjá Framvegis. Stökkpallur er vottuð námsleið fyrir ungt fólk á aldrinum 18–29 ára og er ætluð einstaklingum sem vilja styrkja sig til frekara náms eða þátttöku á vinnumarkaði. Námið leggur áherslu á sjálfseflingu, markmiðasetningu, náms- og starfsfræðslu og að hjálpa þátttakendum að greina styrkleika sína og áhugasvið.
Hópurinn hefur mætt samviskusamlega í tæpa þrjá mánuði, fjórum sinnum í viku, og fengið fjölbreytta fræðslu, tekið þátt í umræðum og unnið að fjölmörgum verkefnum, bæði sem einstaklingar og í hópum.
Nemendur fengu meðal annars fræðslu um jákvæða sálfræði og hagnýt verkfæri hennar, unnu að persónulegri stefnumótun og markmiðasetningu og fengu fræðslu um ADHD í daglegu lífi auk annarrar fjölbreyttrar fræðslu. Einnig komu til okkar fíkniráðgjafi og næringarfræðingur sem voru með fræðslu og umræður um málefni sem tengjast vellíðan og heilsu. Auk þess fengust nemendur við verkefni sem tengdust skapandi hugsun og tæknimálum.
Undir lok námsins tóku við vettvangsheimsóknir sem nemendum þóttu bæði skemmtilegar og áhugaverðar. Hópurinn heimsótti Þjóðleikhúsið, FabLab, Landhelgisgæsluna, Tónhyl og Tækniskólann.
Síðustu dagarnir fóru svo í vinnu við lokaverkefni sem nemendur kynntu með glæsibrag á lokadegi námsins. Verkefnin voru afar fjölbreytt, bæði hvað varðar efnistök og framsetningu, og var virkilega ánægjulegt að sjá sköpunarkraftinn, hugmyndaflugið og metnaðinn sem einkenndi þennan flotta hóp.
Framvegis óskar nemendum til hamingju með áfangann og þakkar fyrir ánægjulegt samstarf á önninni. Nemendunum eru færðar bestu óskir um velfarnað og velgengni í námi, starfi og öðrum verkefnum framtíðarinnar.