Flokkar: Lengra nám Íslenska sem annað mál

Undirbúningsnámskeið í íslensku - kennt á úkraínsku

Námskeið þetta er birt með fyrirvara um breytingar. 

Þetta námskeið er ætlað þeim sem eru byrjendur í íslensku og kjósa að fara hægar í gegnum námsefnið.

Námið er bæði undanfari og á stigi A 1.1.

Lögð er áhersla á íslenska stafrófið, æfingar í að tala og tjá sig á íslensku og læra grunnorðaforða sem nýtist nemendum í samskiptum. Unnið verður með sjálfstraust og öryggi í tjáningu. Einföld málfræði er kynnt á hagnýtan hátt. Mikið er lagt upp úr fjölbreyttum kennsluaðferðum þar sem virkni nemenda og skapandi hugsun gegna lykilhlutverki í öruggu lærdómsumhverfi. Að loknu námi eiga þátttakendur í náminu að tekist á við einfaldar aðstæður og samtöl á íslensku.

Námskeiðið er staðkennt.

Kennari: Ragnar Snær
Tími: Athugið að námskeiðið er kennt frá 13:00-15:00 en einhverja daga verður kennsla frá 13:00-16:00
Lengd: 40 klst.
Verð: 19.700 kr. Hægt er að sækja styrki til flestra stéttarfélaga.
Staður: Sóltún 26

Nánari upplýsingar í framvegis@framvegis.is eða í síma 581 1900.

Flokkar: Lengra nám Íslenska sem annað mál