Flokkar:
Lengra nám
Samskipti og íslenska á hjúkrunarheimilum
Námið er ætlað fólki sem starfar eða hyggst starfa á hjúkrunarheimilum og vill auka öryggi sitt í íslensku og daglegum samskiptum á vinnustað.
Unnið með hagnýta íslensku sem nýtist í samskiptum við íbúa, aðstandendur og samstarfsfólk. Jafnframt er lögð áhersla á fagleg samskipti, menningarnæmi, samvinnu og góða þjónustu. Með fjölbreyttum verkefnum fá þátttakendur tækifæri til að æfa íslenskuna við raunverulegar aðstæður og efla sjálfstraust í starfi.
Námið styður námsmenn í að verða virkari í samskiptum, auka öryggi sitt í starfi og efla gæði þeirrar þjónustu sem þeir veita.
Hefst á haustönn 2026, nánari tímasetningar verða birtar síðar.
Námsgreinar
- Almenn starfshæfni
- Árangursrík samskipti
- Jafnréttisvitund
- Fjölmenningarfærni
- Sjálfstraust
- Stjórnun upplýsinga
- Vellíðan
- Viðskiptavinurinn í brennidepli
- Þrautsegja/seigla
- Lestur
- Hlustun
Nánari upplýsingar er að finna í námskrá
Hæfnivimið
Að loknu námi skal námsfólk búa yfir færni samkvæmt eftirfarandi hæfniviðmiðum.
Nemi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ólíkum þörfum aldraðra og sjúkra
- öldrunarferlinu
- á mikilvægi faglegs og góðs umbúnaðar fyrir líðan aldraðra og sjúkra
- Mismunandi lestraraðferðum og hvenær þær henta
- Mikilvægi lestrarnákvæmni og hraða
- Mismunandi framburði og merkingu bókstafa og orða
- Mismunandi lestraraðferðum og hvenær þær henta til að fá; gróft yfirlit, afla
- bókstaflegra upplýsinga, lesa milli lína og draga ályktanir
- Mismunandi framburði bókstafa og orða
- Mismunandi mállýskum eftir svæðum.
Nemi skal hafa öðlast leikni í að:
- miðla upplýsingum til samstarfsfólks síns
- miðla upplýsingum til skjólstæðinga sinna og aðstandenda þeirra
- Lesa öll orð, þar á meðal þau sem eru ókunn og flókin
- Lesa og skilja mismunandi texta
- Beita aðferðum sem auka lestrarnákvæmni og leshraða
- Lesa sjálfum sér til gagns og ánægju mismunandi texta
- Nota tæknimiðla og forrit til að æfa sig í hlustun
- Fylgjast með og skilja megininntak þess efnis sem fjallað er um.
Nemi skal geta hagnýtt sér þá almennu þekkingu og leikni sem aflað hefur verið til að:
- Nýta sér fjölbreyttar lestraraðferðir.
- Auka og styrkja færni sína og þol til að lesa og skilja mismunandi texta
- Auka lestrarnákvæmni og leshraða.
- Nýta sér tölvu og talgervil við lestur á því tungumáli sem við á
- Meta mikilvægi og merkingu þess sem fjallað er um hverju sinni
- Greina megininntak þess efnis sem fjallað er um
- eiga í samskiptum við aðstandendur skjólstæðinga sinna
- eiga í daglegum samskiptum við sína skjólstæðinga
Inntökuskilyrði
Námið er ætlað fullorðnu fólki eldra en 18 ára
Lengd náms
Heildarlengd námsins eru 97 klst, sem skiptist svona:
- 82 klst. með leiðbeinanda
- 15 klst án leiðbeinanda
Nánari upplýsingar
Í síma 581 1900 og framvegis@framvegis.is
Flokkar:
Lengra nám