Flokkar: Símenntun Sjúkraliða

Tilfinningagreind í starfi sjúkraliða – Herramennirnir – Hver ert þú og hver mætir þér?

Á námskeiðinu verður fjallað um tilfinningagreind og áhrif hennar á líðan, hegðun og samskipti í starfi sjúkraliða. Þátttakendur skoða eigin viðbrögð, viðhorf og samskiptamynstur og hvernig þau geta haft áhrif á samstarfsfólk og einstaklinga sem þeir sinna. Með „Herramönnunum“ eru ólík persónueinkenni og hegðunarmynstur skoðuð á lifandi og aðgengilegan hátt. Lögð verður áhersla á að greina hvað getur legið að baki krefjandi hegðun og hvernig bregðast má við af skilningi og fagmennsku. Einnig verður fjallað um sjálfsvitund, sjálfsstjórn, samkennd, mörk og uppbyggileg samskipti. Námskeiðið veitir sjúkraliðum hagnýt verkfæri til að efla samskiptafærni sína og takast á við fjölbreyttar aðstæður í starfi.

Leiðbeinandi: Ragnheiður Guðfinna GuðnadóttirMScc. félags- og vinnusálfræði. Framkvæmdastjóri & ráðgjafi hjá Hugarheimurehff, www.hugarheimur.is.
Námsmat: 100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.
Punktar: 6 punktar

Staðnám: 6. október
Fjarnám: 8. október

Flokkar: Símenntun Sjúkraliða