Flokkar: Símenntun Sjúkraliða

Sorg og missir eftir veikindi – skilningur og samskipti í starfi sjúkraliða

Sorg og missir eftir veikindi – skilningur og samskipti í starfi sjúkraliða

Á námskeiðinu verður fjallað um sorg og þær tilfinningar sem geta fylgt því að missa ástvin eftir veikindi. Sjúkraliðar eiga oft í samskiptum við einstaklinga og aðstandendur á erfiðum tímum og getur aukin þekking á sorgarviðbrögðum styrkt þá í faglegum og nærgætum samskiptum. Einnig verður farið yfir hvað telst eðlilegt að upplifa í sorgarferlinu og kynnt bjargráð sem geta nýst við úrvinnslu missis.

Leiðbeinandi: Lóa Björk Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ráðgjafi hjá Krabbameinsfélaginu og vann í mörg ár við sérhæfða líknarþjónustu í heimahúsum.
Námsmat: 100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.
Punktar: 6 punktar

Staðnám: 29. september
Fjarnám: 30. september

Flokkar: Símenntun Sjúkraliða