Flokkar: Símenntun Sjúkraliða

Samskiptastreita - Fjarkennt

Á námskeiðinu læra þátttakendur að þekkja helstu streituvalda í samskiptum og hversu flókin samskiptaferli geta verið. Farið verður yfir helstu mistök í samskiptum auk verkfæra til að bæta samskiptafærni sína.

Streita getur birst í ýmsum myndum, einn osakaflötur streitu eru félagslegir streituvaldar. Félagslegir streituvaldar eru til dæmis samskipti við fólk og þau áhrif sem samfélagsmiðlar geta haft. Öll samskipti eru ólík og flókin ferli og geta mismunandi þættir hafa áhrif á samskipti okkar, þess vegna er mikilvægt að gera sér grein fyrir hverjir streituvaldarnir eru.

Leiðbeinandi: Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir M.S. félags- og vinnusálfræði. Framkvæmdastjóri & ráðgjafi hjá Hugarheimur ehf, www.hugarheimur.is.
Námsmat: 100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.
Punktar: 10 punktar

Fjarkennt: 17. og 18. nóvember

Flokkar: Símenntun Sjúkraliða