Kynntir verða hinir mismunandi flokkar fíkniefna og vandamálin þeim samfara. Fráhvarfsmeðferð verður lýst. Einnig verður farið í hina mismunandi flokka ávanabindandi lyfja og vandamál sem koma upp við notkun þeirra. Hverju þurfa heilbrigðisstarfsmenn að vera vakandi fyrir og hvernig má minnka notkun ávanabindandi lyfja? Fráhvörfum og fráhvarfsmeðferð verður lýst.
Leiðbeinandi: Andrés Magnússon, yfirlæknir.
Námsmat: 100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.
Punktar: 6 punktar
Staðnám: 19. mars
Fjarnám: 23. mars - Fullt er á námskeiðið, hvetum alla sem hafa áhuga að skrá sig á biðlista.