Flokkar: Símenntun Sjúkraliða

Geðraskanir – helstu flokkar og einkenni

Á námskeiðinu verður fjallað um helstu flokka geðraskana, meðal annars kvíða, þunglyndi, geðhvörf, geðrof og persónuleikaraskanir. Skoðuð verða algeng einkenni og breytingar sem geta komið fram í geðslagi, hugsun, skynjun, hegðun og sjálfsupplifun. Fjallað verður um mögulegar orsakir geðraskana og samspil líkamlegra, sálrænna og félagslegra þátta. Einnig verður farið yfir mat á ástandi, meðferðarúrræði og mikilvægi samvinnu ólíkra fagstétta.
Námskeiðið eykur þekkingu sjúkraliða og öryggi þeirra við að greina breytingar á líðan og veita einstaklingum með geðraskanir viðeigandi stuðning.

Leiðbeinandi: Snærún Ösp Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og aðstoðardeildarstjóri á Göngudeild geð- og fíknimeðferðar.
Námsmat: 100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.
Punktar: 10 punktar

Staðnám: 16. og 17. nóvember
Fjarnám: 23. og 24. nóvember 

Flokkar: Símenntun Sjúkraliða