Á námskeiðinu öðlast þátttakendur þekkingu og færni til að meta ástand fóta, þekkja algeng fótavandamál og sinna almennri umhirðu fóta innan starfssviðs sjúkraliða. Áhersla verður lögð á að greina breytingar sem geta haft áhrif á heilsu, hreyfigetu og lífsgæði skjólstæðinga, sérstaklega eldra fólks og einstaklinga sem þurfa aðstoð við daglega umönnun.
Fjallað verður um húð, neglur, þrýstingssvæði, bólgur, sár og önnur algeng einkenni ásamt mikilvægi hreinlætis, réttrar umhirðu, hentugs fótabúnaðar og fyrirbyggjandi aðgerða. Einnig verður farið yfir hvaða umhirðu sjúkraliðar geta sinnt, hvenær skrá þarf breytingar og upplýsa annað heilbrigðisstarfsfólk og hvenær vísa þarf skjólstæðingi áfram til viðeigandi sérfræðings.
Verkleg þjálfun:
Leiðbeinandi: Sigríður Rós Jóbatansdóttir, fótaaðgerðarfræðingu og fagstjóri sjúkraliðabrautar Fjölbrautaskóli Suðurnesja.
Námsmat: 100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.
Punktar: 10 punktar
Staðkennt 1. og 3. desember