Þetta námskeið er fyrir þá sem hafa tekið íslensku 1 (A1.1).
Megináhersla verður lögð á tjáningu og frásagnir í gegnum samskipti. Íslenskt samfélag verður til umfjöllunar þar sem atvinnulíf og menning spila stórt hlutverk. Fjallað er um skipulag og verkferla sem almennt tíðkast á vinnustöðum og um réttindi og skyldur á vinnumarkaði í þeim tilgangi að styrkja starfshæfni þátttakenda. Einnig verður fjallað um þjónustu á vegum ríkisins eins og skólaþjónustu og heilbrigðisþjónustu.
Námskeiðið er lengra en hefðbundið námskeið (58 stundir í stað 40 stunda).
Til að ljúka námskeiðum þarf mæting að vera lágmark 80%.
Lengd: 58 klst.
Verð: 29.300. Hægt er að sækja styrki til flestra stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar: nina@framvegis.is eða í síma 581 1900.