Á námskeiðinu fá þátttakendur að spreyta sig á myndflosinu í flæði og sköpun í notalegu umhverfi á vinnustofu Flóðs & fjöru. Allt efni verður á staðnum og fá þátttakendur að taka með sér heim það sem þau flosa í tímanum. Engin handavinnukunnátta þarf að vera til staðar. Yljum okkur á hlýjum tebolla og njótum huggulegrar stemningar.
Dagsetning: 17. september
Tími: 18:00-21:00
Staður: Framvegis, Borgartún 20, 3. hæð.
Leiðbeinandi: Hera Sigurðardóttir, eigandi Flóð og Fjöru.
Athugið að þessi viðburður er einungis fyrir félagsfólk Sameykis.