Flokkar: Gott að vita

Launaseðill dagvinnufólks - Staðnám

Laun og launaseðill – dagvinnufólk

Á þessu námskeiði öðlast þú grunnskilning á launauppbyggingu dagvinnufólks og hvernig hún birtist á launaseðli. Farið er yfir helstu launaliði og algeng hugtök samkvæmt gildandi kjarasamningum, m.a. grunnlaun og launasetningu, persónuálag, stofnanasamninga, starfsmat, starfsaldur og menntun, dagvinnu og yfirvinnu, hvíldartíma og frítökurétt, auk orlofs og desember- og orlofsuppbótar. Markmiðið er að þátttakendur geti lesið launaseðil dagvinnufólks, skilið helstu launaliði og átt auðveldara með að greina villur eða frávik.

Fyrir hverja?
Fyrir fólk í dagvinnu á opinberum vinnumarkaði (og aðra sem vilja styrkja grunninn í launaseðlalestri).

Dagsetning: 15. apríl

Tími: 19:00-20:00

Staður: Framvegis, Borgartún 20. 3. hæð

Leiðbeinandi: Sigdís Þóra Sigþórsdóttir, sérfræðingur í Kjaradeild hjá Sameyki.

Athugið að þessi viðburður er einungis fyrir félagsfólk Sameykis.

Flokkar: Gott að vita