Upplifðu notalega og skapandi stund hjá Myrru Living þar sem þú býrð til þinn eigin heimilisilm
Á skemmtilega og notalega námskeiði lærir þú grunninn í ilmblöndun og færð að skapa þína eigin ilmupplifun. Þú býrð til þitt eigið heimilissprey eða ilmdreifara eða bæði.
Upplifun þar sem þú færð að stíga aðeins út úr hversdeginum, njóta stundarinnar og skapa eitthvað persónulegt sem þú tekur með þér heim.
Innifalið er allt hráefni, en nemendur taka með sér sitt eigið heimilissprey heim að námskeiðið loknu.
Fyrir hverja?
Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á ilmolíum og vilja skapa sína eigin ilmupplifun.
Dagsetning: 6. október
Tími: 17:30-19:30
Staður: Hólmagarður 34
Leiðbeinandi: Sigga Lára er eigandi Myrra living. Hefur hún sérstakan áhuga á hreinum húðvörum, snyrtivörumm og sælkeravörum.
Athugið að þessi viðburður er einungis fyrir félagsfólk Sameykis.