Út með hnútinn í maganum, inn með áhyggjulaus og skemmtileg starfslok.
Ferlið við kaup á fyrstu fasteign verður skoðað frá a til ö. Litið verður á söfnun fyrir útborgun, hentug íbúðalán, íbúðamarkaðinn og fleira.
Þátttakendur læra á kaupferlið í heild sinni og munu geta reiknað út hvaða kaup eru raunhæf. Færra mun koma á óvart í kaupferlinu og helstu ákvarðanir verða teknar með upplýstari hætti.
Fyrir hverja?
Þetta námskeið hentar öllum sem eru farin að hugleiða að kaupa sér sína fyrstu eign.
Dagsetning: 22. september
Tími: 17:00-19:00
Staður: Teams Fjarkennsla - Hlekkur verður sentur á þáttakendur.
Leiðbeinandi: Björn Berg Gunnarsson, sjálfstæður fjármálaráðgjafi. Björn hefur áralanga reynslu af fjármálafræðslu á öllum skólastigum. Hann útskýrir einföld lögmál um peninga með einföldum, skemmtilegum og lifandi hætti. Björn Berg | fjármálaráðgjöf
Athugið að þessi viðburður er einungis fyrir félagsfólk Sameykis.