Flokkar: Gott að vita

Bleknámskeið

Á þessu staka námskeiði kynnumst við bleki og ýmsum tónum bleksins ásamt því að prufa okkur áfram með litað blek. Málað er með penslum, pennastöngum og prikum. Engin kunnátta er nauðsynleg, heldur er vinnustofan hugsuð sem stund til að prufa eitthvað nýtt og skemmtilegt og njóta augnabliksins í skapandi og notalegu umhverfi.

Efni og áhöld eru innifalin í þessu námskeiði ásamt léttum veitingum og að sjálfsögðu bleksvörtu úrvals kaffi.

Fyrir hverja? Námskeiðið hentar öllum sem langar að virkja listrænu hæfileika sína og æfa sig með blek. 

Það eru tvær dagsetningar í boði fyrir þetta námskeið. 

Dagsetning 1: 9. nóvember

Dagsetning 2: 10. nóvember

Tími: 18:00-20:00

Staður:  Studio Hraun í Laugardalnum í Reykjavík.

Leiðbeinandi: Linda Ólafsdóttir myndlistakona og rit- og myndhöfundur barnabóka. Hún hefur myndlýst fjölda bóka ásamt því að kenna námskeið í teikningu, myndlýsingum og málun Linda Ólafsdóttir

Athugið að þessi viðburður er einungis fyrir félagsfólk Sameykis.

Flokkar: Gott að vita