Uppleið er nám sem byggir á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) og hefur það að markmiði að efla andlega líðan, sjálfstraust og virkni þátttakenda í daglegu lífi. Áhersla er lögð á að þátttakendur öðlist aukinn skilning á tengslum hugsana, tilfinninga og hegðunar og læri hagnýtar aðferðir til að takast á við kvíða, depurð og aðrar áskoranir sem geta haft áhrif á líðan og daglega virkni.
Í náminu vinna þátttakendur markvisst að því að þekkja eigin hugsanamynstur, setja sér raunhæf markmið og tileinka sér aðferðir sem stuðla að bættri líðan og aukinni trú á eigin getu. Jafnframt er lögð áhersla á að þátttakendur geti nýtt þá þekkingu og færni sem þeir öðlast til að takast á við áskoranir í daglegu lífi og styrkja stöðu sína til áframhaldandi náms og þátttöku í atvinnulífi.
Námið er bæði bóklegt og verklegt og byggir á fræðslu, umræðum, verkefnavinnu og hagnýtum æfingum. Þátttakendur vinna einnig verkefni milli kennslustunda til að þjálfa sig í að nýta aðferðir HAM í eigin lífi.
Þunglyndi og kvíði
Markmið
Breytt hugsun – breytt líðan
Sjálfsmat og sjálfsefling
Bakslagsvarnir
Nánari upplýsingar um námið er að finna í námskrá Uppleiðar
Námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugrænni atferlismeðferð (HAM) og helstu aðferðum hennar
tengslum hugsana, tilfinninga og hegðunar
áhrifum hugsana og hegðunar á andlega og líkamlega líðan
eigin tilfinningum og hugsanamynstrum
leiðum til að takast á við neikvæðar hugsanir og efla hjálplega hugsun.
Námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
þekkja og skoða eigin hugsanir og áhrif þeirra á líðan og hegðun
greina tengsl hugsana, tilfinninga og hegðunar
setja sér raunhæf markmið og vinna markvisst að þeim
nýta hagnýtar aðferðir til að efla virkni og bæta líðan.
Námsmaður skal geta hagnýtt sér þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta aðferðir HAM í daglegu lífi
hafa jákvæð áhrif á eigin líðan með breytingum á hugsun og hegðun
takast á við áskoranir með uppbyggilegum hætti
efla sjálfstraust og trú á eigin getu
þekkja leiðir til að viðhalda bættri líðan og bregðast við bakslagi.
Námið er ætlað einstaklingum innan markhóps framhaldsfræðslu, einkum þeim sem hafa stutta formlega skólagöngu að baki, vilja efla starfshæfni sína eða búa við skerta möguleika til náms eða atvinnuþátttöku.
Námið hentar einstaklingum sem vilja öðlast aukna færni í að takast á við hamlandi líðan, efla daglega virkni og styrkja sig til frekari þátttöku í námi, starfi og samfélagi.
Æskilegt er að þátttakendur fari í skimunarviðtal hjá fagaðila áður en námið hefst til að meta hvort námsleiðin henti þörfum þeirra.
Námið fer fram í litlum hópum þar sem lögð er áhersla á öruggt og styðjandi námsumhverfi, virka þátttöku og hagnýta verkefnavinnu.
Kennslan byggir á fræðslu, umræðum og verkefnum sem þátttakendur vinna bæði í kennslustundum og á eigin tíma. Mikilvægt er að þátttakendur geti nýtt það sem þeir læra í daglegu lífi.
Lengd náms
40 klukkustundir, þar af 24 klukkustundir með leiðbeinanda og 16 klukkustundir í sjálfstæðri verkefnavinnu.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um námið fást hjá Framvegis – miðstöð símenntunar í síma 581 1900 eða með tölvupósti á framvegis@framvegis.is.