Á námskeiðinu verður farið yfir tilurð fæðubótarefna, hvers vegna þau hafi komið fram, fyrir hverja þau eru og hvernig áhrif þau hafa á aldraða og veika. Skoðaðar verða hvað reglur gilda um fæðubótarefni og hvernig á að tilkynna slíkar vörur. Megin áhersla verður síðan á fæðubótarefnin sjálf, hver eru vinsælust þessa dagana, þá vítamín, steinefni, amínósýrur og önnur eins og kreatín, koffín ofl.
Leiðbeinandi: Steinar B. Aðalbjörnsson, næringarfræðingur og næringarráðgjafi.
Námsmat: 100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.
Punktar: 6 punktar