Flokkar: Íslenska sem annað mál

Íslenska 2 (A1.2) og samfélagið, kennt á spænsku. Staðnám

Þetta námskeið er fyrir þá sem hafa tekið íslensku 1 (A1.1).

Megináhersla verður lögð á tjáningu og frásagnir í gegnum samskipti. Íslenskt samfélag verður til umfjöllunar þar sem atvinnulíf og menning spila stórt hlutverk. Fjallað er um skipulag og verkferla sem almennt tíðkast á vinnustöðum og um réttindi og skyldur á vinnumarkaði í þeim tilgangi að styrkja starfshæfni þátttakenda. Einnig verður fjallað um þjónustu á vegum ríkisins eins og skólaþjónustu og heilbrigðisþjónustu.

Námskeiðið er lengra en hefðbundið námskeið (58 stundir í stað 40 stunda).

Til að ljúka námskeiðum þarf mæting að vera lágmark 75%.

Lengd: 58 klst.

Verð: 27.000. Hægt er að sækja styrki til flestra stéttarfélaga.

Tímabil: 12.ágúst -20.nóvember 2025

Dagar: Þriðjudaga og fimmtudaga.

Hvenær: kl. 17:10 - 19:10.

Nánari upplýsingar: framvegis@framvegis.is eða í síma 581 1900.

Flokkar: Íslenska sem annað mál