Flokkar: Íslenska sem annað mál

Íslenska 1 (A1.1) Kennt á Arabísku

Lögð er áhersla á íslenska stafrófið, æfingar í að tala og tjá sig á íslensku og læra grunnorðaforða sem nýtist nemendum í samskiptum. Unnið verður með sjálfstraust og öryggi í tjáningu. Einföld málfræði er kynnt á hagnýtan hátt. Mikið er lagt upp úr fjölbreyttum kennsluaðferðum þar sem virkni nemenda og skapandi hugsun gegna lykilhlutverki í öruggu lærdómsumhverfi. Að loknu námi eiga þátttakendur í náminu að tekist á við einfaldar aðstæður og samtöl á íslensku.

Til að ljúka námskeiðum þarf mæting að vera lágmark 75%.

Lengd: 40 klst.
Verð: 57.400 kr. Hægt er að sækja styrki til flestra stéttarfélaga.
Staður: Framvegis, Borgartún 20, 3. hæð.
Tímabil: 23. mars - 6. maí 2026
Dagar: Mánudaga, Miðvikudaga og Föstudaga
Hvenær:. Kl.13:00-15:00

Nánari upplýsingar hjá framvegis@framvegis.is eða í síma 581 1900.

Flokkar: Íslenska sem annað mál