Vatnsleikfimi er eitt af því besta sem þú getur gert fyrir líkamann. Æfingar í vatni eru alhliða og aðstoða (og jafnvel flýta fyrir) við meðferð á ýmsum kvillum og/eða koma í veg fyrir þá. Þetta námskeið er einn mánuður í senn og er kennt tvisvar í viku.
Þjálfun í vatni styrkir hjartað og lungun, vatnið veitir viðráðanlega mótstöðu og eykur þar með styrk útlima. Vöðvar, liðamót og beinagrindin styrkist við æfingarnar. Rannsóknir hafa sýnt að hreyfing vinnur gegn bæði beinþynningu og andlegum kvillum auk svo margs annars. Meðal helstu kosta þess að stunda reglulega vatnsleikfimi má telja:
Vöðvatyriking, aukið þol, eykur sveigjanleika, minnkar stress og kvíða, brennir hitaeiningum, lækkar blóðþrýsting, er sérlega góð samvera með öðru skemmtilegu fólki.
Fyrir hverja?
Námskeiðið er fyrir fullorðna, karla og konur.
Dagsetning: 10., 17., 24. og 31. mars.
Tími: 19:15-20:00
Staður: Sundlaug Hrafnistu við Boðaþingi 5-7, 203 Kópavogi.
Leiðbeinandi: Sóley er útlærður íþróttakennari. Sóley er fjölskyldumanneskja og sinnir alls kyns útiveru af mikilli ástríðu. Þar má telja göngur og skíðaferðir. Að auki er Sóley handlaginn smiður, listakona og úrræðagóð þegar kemur að endurbyggingu gamalla húsa. sundskoli.is
Athugið að þessi viðburður er einungis fyrir félagsfólk Sameykis.