Lærðu að sauma útsaum, á þínum hraða og þegar þér hentar. Við lærum grunnspor í útsaum og saumum bókstaf með fallegum blómum. Þú færð skýra og góða kennslu frá Tinnu Laufdal textílkennara og fatahönnuði. Við gerum verkefnið saman alveg frá því að skoða hvað þarf í þetta verkefni þar til þú hefur lokið verkefni þínu. Þú færð aðgang að ýtarlegum kennslumyndböndum sem þú spilar og stöðvar að vild. Við tölum svo saman í lokaða samfélaginu okkar þar sem þú getur fengið aðstoð og hvatningu svo þú sitjir aldrei föst/fastur. Ath. að það er heimavinna líka. Í lok námskeiðs verður þú búin/n að sauma fallegan útsaum sem jafnvel má nýta til að sauma annað úr, t.d. handavinnu tösku með þínum upphafsstaf eða snyrtibuddu fyrir þig eða þína, jafnvel í gjöf, sem þú sjálf/ur saumaðir! Lærum saman!
Fyrir hverja?
Fyrir byrjendur og lengra komna með áhuga á handverki og vilja læra að sauma og skapa fallega hluti.
Dagsetning: 7., 14., og 21. maí.
Tími: 20:00-21:00
Staður: Fjarkennsla á Zoom. Hlekkur verður sendur á þáttakendur.
Leiðbeinandi: Tinna Laufdal stofnandi Tiny Viking. Hún er menntaður textílkennari og fatahönnuður. Hefur prjónað frá því að hún var ung og hefur margra ára reynslu af textíl kennslu.
Athugið að þessi viðburður er einungis fyrir félagsfólk Sameykis.