Flokkar: Gott að vita

Það er nóg pláss í klúðurklúbbnum

Í þessum fyrirlestri er fjallað um listina að klúðra og hvernig hægt er að takast á við eigin mistök eða hamfarir með húmor og sjálfsvinsemd. Rannsóknir sýna að mistök eru óhjákvæmilegur fylgifiskur alls árangurs. Í raun má segja að þau séu eldsneyti sköpunar, lærdóms og þroska. Samt eigum við það flest til að reyna að fela þau, skammast okkar eða forðast þau eins og heitan eldinn. En hvað ef við myndum líta á mistök sem merki um að við séum að prófa, læra og vaxa?

Dagsetning: 30. september 

Tími: 19:00-21:00

Leiðbeinandi: Ingrid Kuhlman, M.A. í hagnýti jákvæðri sálfræði og óformlegt doktorsnám í að gera mistök með stæl.

Athugið að þessi viðburður er einungis fyrir félagsfólk Sameykis.

Flokkar: Gott að vita