Hver og einn þátttakandi býr til 40 manna kransaköku sem hann getur síðan fryst og boðið upp á í veislu, t.d. í fermingarveislu.
Allt hráefni og bakstur er innifalið í verðinu. Hægt verður að kaupa auka deig á staðnum til að stækka kökuna. Þátttakendur eru beðnir um að taka með sér ílát undir kökuna og svuntu á námskeiðið.
Námskeiðið er kennt tvisvar sinnum svo athugið vel hvaða dagsetningu þið skráið ykkur á.
Námskeið 1: Þriðjudagurinn 3. mars
Námskeið 2: Miðvikudagurinn 4. mars
Kl. 18:00-20:00
Staður: Kjalarvogi 12-14. Mötuneyti og skrifstofa Húsamiðjunar
Leiðbeinandi: Halldór Kr. Sigurðsson bakari og konditor. Hann hefur í fjölda ára kennt áhugasömum að búa til dýrindis konfekt, kransakökur og páskaegg.
Athugið að þessi viðburður er einungis fyrir félagsfólk Sameykis.