Stutt ritlistarnámskeið þar sem þátttakendur gera ýmsar tilraunir með texta og skrif og öðlast aukið sjálfstraust á ritvellinum. Hér er hvorki einblínt á stafsetningu né málfræði heldur skrifagleði og sköpun.
Fyrra kvöldið spreyta þátttakendur sig á ýmsum ritlistaræfingum en á seinna kvöldinu verður sjónum beint að hinu skemmtilega formi örsögum og möguleikum þess.
Dagsetningar: Mánudagar 9. og 16. október
Kl: 18:00-20:00
Lengd: 4 klst.
Staður: Framvegis, Borgartúni 20, 3.hæð
Leiðbeinandi: Sunna Dís Másdóttir, M.A. í ritlist, er sjálfstætt starfandi sem rithöfundur, þýðandi, ritstjóri og ritlistarkennari. Sunna hefur kennt fjölmörg ritlistarnámskeið, bæði í raunheimum og netheimum, og hefur staðið fyrir rafrænum skrifaáskorunum og ritlistarnámskeiðum síðustu misseri við góðan orðstír.