Flokkar: Lengra nám

Á Stökkpalli er áhersla lögð á að byggja upp samskiptafærni, efla sjálfstraust og þjálfa námsmenn til atvinnuþátttöku í mismunandi starfsumhverfi og til áframhaldandi náms. Námsmenn vinna markvisst að eigin færniuppbyggingu með markmiðasetningu, þjálfun í samskiptum og tjáningu, auknu fjármálalæsi, skipulögðum vinnubrögðum við upplýsingaleit og aukinni hæfni til að taka þátt í námi og starfi. Markmið námsins er að auka starfshæfni námsmanna og gera þá meðvitaðri um eigin styrkleika. Námið er ætlað þeim sem horfið hafa frá námi og/eða eru án atvinnu. Tilgangur þess er að virkja þá til þátttöku í atvinnulífi eða til áframhaldandi náms, auðvelda þeim að takast á við verkefni sem þeim eru falin á vinnustað eða hjá fræðsluaðila og stuðla þannig að jákvæðu viðhorfi til vinnumarkaðar og áframhaldandi náms.

Námið hjá Framvegis er fyrir einstaklinga á aldrinum 18 til 29 ára.

Námið hefst 12. mars 2024.

Einnig er af stað með hópa í náminu þegar næg þátttaka fæst og við bjóðum við stofnunum og fyrirtækjum að setja af stað lokaða hópa.

Námsgreinar

  • Markmiðasetning og sjálfsefling
  • Samskipti og samstarf
  • Vinnuumhverfi og vinnustaðir
  • Vettvangsnám á vinnustað.

Nánari upplýsingar um námið er að finna í námskrá

Hæfniviðmið

Námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • gagnlegum aðferðum í samskiptum og við samstarf
  • aðferðum til að ná settum markmiðum
  • mismunandi vinnuumhverfi og vinnustaðamenningu
  • helstu leiðum til að afla upplýsinga um nám og störf
  • starfsumhverfi, reglum og vinnuferlum á vinnustað.

Námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:

  • taka þátt í uppbyggilegum samskiptum.
  • setja persónuleg markmið í einkalífi og starfi.
  • vinna sjálfstætt eftir skipulagi vinnustaðar.
  • vinna í samræmi við öryggis-, hreinlætis- og gæðakröfur.

Námsmaður skal geta hagnýtt sér þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • sýna trú á eigin getu.
  • sýna jákvætt viðhorf til starfa og frekara náms.
  • nýta góða starfshætti í samræmi við stefnu vinnustaðar.
  • leysa algeng verkefni á vinnustað með fullnægjandi hætti.
  • eiga árangursrík samskipti við samstarfsfólk og viðskiptavini.

Inntökuskilyrði

Námið er fyrir þá sem eru 18 ára til 29 ára, eru ekki í námi né vinnu. Þeir sem hafa ekki lokið námi í framhaldsskóla eru í forgangi. 

 

Tilhögun náms

Námið fer fram mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 9:30 til 13:00.

Lengd náms

180 klukkustundir.

Verð

78.000 kr. Hægt er að sækja styrki til flestra stéttarfélaga. 

Einingar

Heimild er til að meta námið til allt að 10 eininga í framhaldsskóla.

Nánari upplýsingar

Ingibjörg Kristinsdóttir, sími 581 1900 og ingibjorg@framvegis.is

2024 vorönn