Flokkar: Lengra nám

Skrifstofuskólinn er fyrir fólk sem vill skapa sér sterkari stöðu á vinnumarkaði með aukinni menntun eða er á leiðinni á vinnumarkaðinn að nýju eftir hlé. Einnig er námið tilvalið sem undirbúningur fyrir bókaranám. Tilgangur námsins er að auka sjálfstraust námsmanna til að takast á við almenn skrifstofustörf og stuðla að jákvæðu viðhorfi þeirra til áframhaldandi náms. Í náminu er lögð áhersla á að námsmenn læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Skrifstofuskólinn er kenndur í samstarfi við Promennt og er námið styrkt af Fræðslusjóði.

Skráning er í gangi í næstu hópa þar sem kennsla hefst 15. febrúar og lýkur 16. júní 2023.

Námsgreinar

  • Tölvu- og upplýsingatækni
  • Verslunarreikningur
  • Bókhald
  • Tölvubókhald
  • Færnimappa og ferilskrá
  • Námsdagbók og markmiðasetning
  • Námstækni
  • Samskipti
  • Þjónusta
  • Lokaverkefni

Nánari upplýsingar er að finna í námskrá

Hæfniviðmið Skrifstofuskólans

Námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Lykilþáttum almennra skrifstofustarfa með áherslu á þjónustu og bókhald.
  • Uppbyggingu bókhalds.
  • Verslunarreikningi.

Námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:

  • Sinna almennum skrifstofustörfum með áherslu á þjónustu og bókhald.
  • Reikna út virðisaukaskatt, prósentur og afstemma bókhald.

Námsmaður skal geta hagnýtt sér þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Veita viðskiptavinum góða þjónustu.
  • Skrá og stemma af fjárhagsbókhald.
  • Sinna almennum bókhalds- og skrifstofustörfum á faglegan hátt.

Inntökuskilyrði

18 ára og eldri, þeir sem hafa ekki lokið námi í framhaldsskóla eru í forgangi. Þetta á þó ekki við um nemendur sem skrá sig í námið í gegnum verkefnið Nám er tækifæri hjá VMST.

Tilhögun náms

Námið er í samvinnu við Promennt og kennt er í morgunhóp á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá kl. 8:30-12:00. Kennsla í kvöldhópi er á mánudögum og miðvikudögum kl. 17:30-21:00 og á laugardagsmorgnum frá kl. 9:00-12:30. Hluti náms er í formi vendináms.  Enginn próf eru í náminu en nemendur þurfa að hafa 80% mætingu til að útskrifast. Boðið er upp á fjarnám í beinni sem þýðir að hvar sem nemendur eru staddir í heiminum geta þeir tekið þátt í kennslustundum. 

Lengd náms

240 kennslustundir eða 160 klukkustundir í kennslu (námskráin er í heild 240 klukkustundir, þar af 160 með leiðbeinanda og 80 án leiðbeinanda)

Verð

63.000 kr. Hægt er að sækja styrki til flestra stéttarfélaga. 

Einingar

Heimild er til að meta námið til allt að 18 eininga í framhaldsskóla.

Skráning hér hjá samstarfsaðilum okkar í  

Merki Promennt 

 

Nánari upplýsingar

Helga Tryggvadóttir hjá Framvegis, s.581 1900 eða helga@framvegis.is