Flokkar: Gott að vita

Samskipti á vinnustað

Ingrid Kuhlman - Samskipti á vinnustað

Við eigum öll okkar myndrænu, ósýnilegu fötu sem við tökum með okkur hvert sem við förum. Í fötunni geymum við tilfinningar okkar. Fatan fyllist af jákvæðum samskiptum eins og klappi á bakið eða fallegum orðum í okkar garð en hún tæmist af neikvæðum samskiptum eins og t.d. nöldri eða gagnrýni annarra. Okkur líður frábærlega þegar fatan okkar er full, og hörmulega þegar hún er tóm. Því meira sem er í fötunni okkar, því auðveldara verður að deila umframmagninu með öðrum.

Á námskeiðinu er fjallað um einkenni góðra samskipta á vinnustað. Farið er í leiðir til að auka jákvæðni og orku. Byggt er m.a. á bókunum How full is your bucket? og Fish! A Remarkable Way to Boost Morale and Improve Results.

Dagsetning:  Þriðjudagur 7. nóvember

Kl. 19:00-21:00

Lengd: 2 klst

Staður: Netviðburður– skráðir þátttakendur fá senda krækju með aðgangi að námskeiðinu.

Leiðbeinandi: Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði frá Buckinghamshire New University, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.

Athugið að þessi viðburður er einungis fyrir félagsfólk Sameykis.

Flokkar: Gott að vita