Flokkar: Gott að vita

Styrkleikakort er eitt af þeim verkfærum sem notuð eru á námskeiðinu.

Stendur þú á krossgötum og/eða ert að velta fyrir þér hvað er næst í lífinu? Er ástæða til að staldra við og skoða hvaða möguleika framtíðin ber í skauti sér?

Námskeiðinu er ætlað að styðja þá sem finna hjá sér þörf eða löngun til að vega og meta styrkleika sína og langanir, með það fyrir augum að þátttakendur skoði markmið sín og íhugi næstu skref.

Fléttaðar eru saman ýmsar aðferðir úr sálfræði (sérstaklega jákvæðri sálfræði), náms- og starfsráðjöf og verkefnastjórnun allt með það að markmiði að þátttakendur fái sem mest út úr eigin sjálfskoðun. 

Námskeiðið er í 6 lotum:

  • Hamingja og velsæld
  • Hvar er ég núna – og hvernig komst ég hingað?
  • Styrkleikar og hæfni
  • Draumar og ástríða
  • Að taka ákvarðanir og gera breytingar
  • Áfram veginn

Segja má að námskeiðið sé ferðalag þar sem þátttakendur fara í sjálfskoðun og gera áætlun um næstu skref í lífinu, annað hvort stór eða smá. Tvær lotur eru í hvert sinn og því nauðsynlegt að þátttakendur mæti í alla tímana.

Dagsetning: Fimmtudaga 7., 14. og 21. mars

Kl. 17:00-20:00

Lengd: 9 klst.

Staður: Framvegis, Borgartún 20, 3. hæð

Leiðbeinandi: Helga Tryggvadóttir, náms- og starfsráðgjafi og verkefnastjóri með diploma í hugrænni atferlismeðferð, jákvæðri sálfræði og verkefnastjórnun. 

Athugið að þessi viðburður er einungis fyrir félagsfólk Sameykis.

Ummæli

Afar gott námskeið sem mætti jafnvel vera lenga.