Flokkar: Lengra nám

Líf og heilsa - lífsstílsþjálfun er skemmtileg blanda af fræðslu um heilsu og heilsueflingu. Í náminu er lögð áhersla á að taka ábyrgð á eigin heilsu, setja sér markmið um næringu og hreyfingu og kynnast fjölbreyttum aðferðum til að rækta líkama og sál.

Markmið námsins er að auka þekkingu námsmanna á áhrifaþáttum heilsu, leikni þeirra í heilsulæsi og hæfni til að taka ábyrgð á eigin heilsu. Í náminu er lögð áhersla á sjálfseflingu, ígrundun, markmiðasetningu og virkni með samvinnunámi og virkum stuðningi leiðbeinenda. Námið er ætlað fólki sem vill bæta eigin heilsu. Það er fyrst og fremst hugsað sem forvörn en getur einnig nýst fólki með heilsufarsvanda á borð við háan blóðþrýsting, hátt kólesteról eða sykursýki af gerð tvö.

Námsgreinar

  • Heilsulæsi, skráning og mat
  • Samvinna, markmiðasetning og hvatning
  • Fjölbreytt hreyfing
  • Hollt mataræði, skammtastærðir og næring
  • Andlegar áskoranir
  • Eftirfylgni

Nánari upplýsingar er að finna í námskrá.

Hæfniviðmið

Námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Áhrifaþáttum heilsu.
  • Þjónustu og faglegum stuðningi sem er í boði í nærumhverfi hans.

Námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:

  • Lesa í áhrifaþætti eigin heilsu.
  • Miðla á jákvæðan hátt til annarra þekkingu sinni og reynslu af lífsstílsbreytingu sinni.

Námsmaður skal geta hagnýtt sér þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sértil að:

  • Taka ábyrgð á eigin heilsu.
  • Viðhalda og festa lífsstílsbreytingar í sessi.
  • Nýta stuðningsnet í sínu nærumhverfi til að viðhalda lífsstílsbreytingum.
  • Meta árangur af eigin þjálfun, aukinni hreyfingu og breyttu mataræði, út frá eigin markmið

Inntökuskilyrði

18 ára og eldri, þeir sem hafa ekki lokið námi í framhaldsskóla eru í forgangi. 

Lengd náms

300 klukkustundir

Verð 

26.000 kr. Hægt er að sækja styrki til flestra stéttarfélaga. 

Nánari upplýsingar hjá Framvegis, s. 581 1900 eða í framvegis@framvegis.is

2024 vorönn