Flokkar: Lengra nám

Efling stafrænnar hæfni: grunnnám í forritun er nám sem skiptist í 4 námsþætti og er ætlað að ná utan um grunnþætti forritunar í hönnun og forritun, rökhugsun, sköpun, þrautalausnir og kynna helstu forritunarmálin. Markmið námsins er að efla skilning og hæfni einstaklinga á grunnþáttum forritunar, þekkingu á uppbyggingu forrita, notkun hugtaka forritunar og að tengja saman forritunartungumál og hugtök forritunar. Þátttkendur læra hvernig hægt er að koma hugmyndum sínum í framkvæmd með hugmyndafræði forritunar, lögð er áhersla á öguð og viðurkennd vinnubrögð við greiningu og hönnun tölvuforrita. Að loknu grunnnámi í forritun hafa einstaklingar fengið þjálfun í að búa til forrit, teymisvinnu, sjálfstæðum vinnubrögðum og greinandi hugsun í forritunarumhverfi.

Námsgreinar

  • Grunnhugtök forritunar
  • Forritunarleg hugsun
  • Forritun og kóðun 
  • Hagnýt forritun

Hæfniviðmið

Námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • undirstöðuatriðum og grunnhugtökum forritunar
  • uppbyggingu forrita og stýrikerfa
  • hugmyndafræði og aðferðafræði forritunar

Námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota forritunartungumáli og þá þætti sem það felur í sér
  • notar forritunarmál á textaformi til að skrifa einföld forrit
  • skapa einföld forrit á læsilegan og skiljanlegan hátt
  • finna og laga villur í forritum á sjálfstæðan hátt
  • nota forritunarlega hugsun, aðferðafræði og hugmyndafræði forritunar við lausnir vandamála í forritunarumhverfi

Námsmaður skal geta nýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skrifa forrit út frá rökfræði forritunar og skriflegu forritunarmáli
  • framkvæma eigin hugmyndir á skipulegan máta í forritunarumhverfi
  • vinna skipulega í teymi og deila verkefnum á hagkvæman hátt við lausn vandamála

Inntökuskilyrði

18 ára og eldri, þeir sem hafa ekki lokið námi í framhaldsskóla eru í forgangi. 

Lengd náms

80 klukkustundir.

Verð

28.000 kr. Hægt er að sækja styrki til flestra stéttarfélaga. 

Nánari upplýsingar hjá Framvegis, s. 581 1900 eða í framvegis@framvegis.is

2024 vorönn