Flokkar: Lengra nám Lengra nám

Aftur í nám er fyrir einstaklinga 18 ára og eldri sem glíma við lestrar- og skriftarörðugleika og hafa ekki klárað framhaldsskóla.

Markmiðið námsins er að auka hæfni þátttakenda í starfi og námi og stuðla að jákvæðu viðhorfi til áframhaldandi náms.

Tilgangur námsins er að styrkja þátttakendur og þjálfa í lestri og skrift með aðferðum Ron Davis (dyslexia.com).

Farið er af stað með hópa í náminu þegar næg þátttaka fæst. Einnig bjóðum við stofnunum og fyrirtækjum að setja af stað lokaða hópa.

Námsgreinar

  • Sjálfsstyrking
  • Ron Davis þjálfun 
  • Íslenska
  • Tölvur- og upplýsingatækni
  • Náms- og starfsráðgjöf

 Markmið námsins

Lokamarkmið námsins eru að námsmaður:

  • þekki eðli lesblindu samkvæmt aðferðafræði Ron Davis
  • auki færni sína í lestri. sé fær um að halda sér í lesþjálfun
  • sé fær um að meta stöðu sína
  • þekki ábyrgð sína á námi sínu
  • bæti sjálfstraust sitt til náms
  • hafi mætt a. m. k. 80% skv. stundaskrá

Inntökuskilyrði

Námið er fyrir þá sem eru 18 ára og eldri. Þeir sem hafa ekki lokið námi í framhaldsskóla eru í forgangi.

Tilhögun náms

Fyrirkomulag námsins fer eftir aðstæðum hverju sinni. Þó er alltaf byrjað á að hópurinn fær sameiginlega fræðslu auk þess sem kennslan er sameiginleg í lok námsins. Athygli er vakin á því að meira en helmingur námsins er einkakennsla.

Lengd náms

65 klst (þar af 35 klst í einkakennslu með Davis leiðbeinanda).

Verð

103.000 krónur. Hægt er að sækja styrki til flestra stéttarfélaga.

Einingar

Möguleiki er að stytta nám í framhaldsskóla um allt að 7 einingar.

Nánari upplýsingar

Í síma 581 1900 og framvegis@framvegis.is