Á námskeiðinu verður farið yfir hvað geðrof er, einkenni, orsakir, meðferð og horfur. Geðrof getur verið tímabundið ástand af ýmsum völdum, t.d. neyslu vímuefna, en einnig endurtekið og/eða langvarandi ástand, þá sem hluti af alvarlegum geðsjúkdómi.
Geðrof hefur áhrif á atferli, hvernig einstaklingurinn skynjar umhverfi sitt og hvernig hann hugsar. Farið verður yfir meðferð og meðferðarúrræði sem bjóðast í dag.
Leiðbeinandi: Ísafold Helgadóttir, geðlæknir.
Tími: 10. og 11. mars
Kl: 17:00 - 21:00
Lengd: 10 stundir/punktar
Verð: 27.000 kr.
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð |
---|