Starfsfólk á heilbrigðisstofnunum eru á meðal þeirra starfsstétta sem oftast verða fyrir ofbeldi á vinnustað.
Á námskeiðinu öðlast þátttakendur grunnþekkingu á orsökum ofbeldis. Skoðaðir verða þeir þrír flokkar sem skipta má orsökum ofbeldis í og farið verður yfir fyrirbyggjandi aðgerðir og viðbrögð við ofbeldi sem eru mikilvæg og nauðsynleg í vinnuumhverfi heilbrigðisstofnana.
Leiðbeinandi: Jón Snorrason, sérfræðingur í geðhjúkrun, Geðsviði Landspítalans
Tími: 6. og 13. mars.
Klukkan: 17:00 – 21:00
Lengd: 10 punktar / kennslustundir
Verð: 28.900 kr.