Raunfærnimat á sjúkraliðabraut

Upptaka af kynningu á raunfærnimatinu:
 
Í stuttu máli þá er í raunfærnimati á sjúkraliðabraut (eða sjúkraliðabrú) farið yfir reynslu þína og þekkingu og hún metin til eininga á brautinni. Litið er svo á að það skipti ekki máli hvar þú öðlaðist færnina, ef þú hefur hana þá einfaldlega hefur þú hana.

Þannig er í raunfærnimati metin sú færni og þekking sem þú býrð yfir. Færni má ná með ýmsum hætti til dæmis í gegnum starfsreynslu, starfsnám, frístundir og nám. Þetta getur verið bæði formlegt nám, sem fram fer innan skólakerfisins og óformlegt nám sem fer fram utan skólakerfisins, t.d. í starfi. Raunfærnimat er mat á þeirri raunfærni sem viðkomandi hefur og eðlilegt að meta hana óháð því hvernig hennar hefur verið aflað.

Raunfærnimatið er óháð búsetu þátttakenda og fer fram rafrænt að miklu leyti.

Raunfærnimat á haustönn er langt komið en hægt er að skrá sig í matið á vorönn 2026 hér

Dagskrá haustannar 2025

Kynningarfundur verður þriðjudaginn 7. október kl. 11:00 - 11:30. 

Skimunarviðtöl hjá náms- og starfsráðgjafa hefjast miðvikudaginn 8. október. Smellið hér til að bóka viðtal 

Eitt af því sem tekið er fyrir er skimunarlisti sem þú hefur fyllt út og má nálgast hér   


Sjálfsmatsfundur - færnimappa. 

Þátttakendur þurfa að skila eftirfarandi gögnum áður en kemur að sjálfsmatsfundum:

  • Staðfesting á starfi í a.m.k. 3 ár
  • Staðfesting á fyrra námi

Fundirnir verður á netinu og velja þátttakendur á milli tveggja tímasetninga:

    • Miðvikudagur 15. október kl.11:00-12:00. 
    • Fimmtudagur 16. október kl. 15:00-16:00. 
    • Aukafundur mánudaginn 27. október kl. 11:30-12:00.

Fyrir fundina er gott að vera búin að finna til gögn og byrja að vinna færnimöppuna. Þú getur hlaðið niður möppunni með því að smella hér: Færnimappa


 Sjálfsmatsfundur - matslisti. Fundirnir verða á netinu. Þátttakendur velja milli tveggja tímasetninga sem verða auglýstar síðar. 

    • Föstudagur 17. október kl.11:00-12:00. 
    • Mánudagur 20. október kl. 15:00-16:00. 
    • Aukafundur mánudaginn 27. október kl. 15:00-16:00.

Matslistinn verður sendur í tölvupósti til þátttakenda.


Matssamtöl.

Matssamtöl hefjast í október.

Raunfærnimatinu lýkur með staðfestingu á metnum einingum og lokaviðtali.

Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.

Fyrir hver er raunfærnimat?

Þátttakendur þurfa að uppfylla þrjú skilyrði:

    1. hafa litla formlega menntun (þ.e. hafa ekki útskrifast úr framhaldsskóla)
    2. vera 23 ára eða eldri
    3. hafa lágmark 3 ára starfsreynslu í geiranum - í þessu tilfelli t.d. umönnun sjúklinga

Þau sem hafa meiri menntun, t.d. stúdentspróf, en uppfylla hin tvö skilyrðin greiða sjálf fyrir raunfærnimatið.

Hvað er verið að meta?

Eftirfarandi áfangar á brautinni eru til mats:

    • Heilbrigðisfræði - HBFR1HH05
    • Hjúkrun grunnur / hjúkrun fullorðinna 1 - HJÚK2HM05
    • Hjúkrun grunnur / hjúkrun fullorðinna 2 - HJÚK2TV05
    • Hjúkrun grunnur / hjúkrun fullorðinna 3 - HJÚK3ÖH05
    • Hjúkrun grunnur / samfélagshjúkrun - HJÚK3FG05
    • Hjúkrun grunnur /almenn hjúkrun - HJÚK1AG05
    • Hjúkrun grunnur verkleg /líkamsbeiting og sjúkraskrár - HJVG1VG06
    • Líffræði / næringarfræði - LÍFF2NÆ05
    • Samskipti - SASK2SS05
    • Siðfræði heilbrigðisstétta - SIÐF1SÁ05
    • Starfsþjálfun sjúkraliðanema - STAF3ÞJ27
    • Upplýsingatækni / heimildaritgerð - notkun - UPPT1ÁH02
    • Verknám á hjúkrunarheimili öldrunarlækningadeild - VINN3ÖH08
    • Verknám á sérdeildum - VINN3GH08

Kostnaður

Þau sem uppfylla skilyrðin þrjú: raunfærnimatið er þeim að kostnaðarlausu. 

Þau sem ekki eru í markhópi framhaldsfræðslu (t.d. hafa útskrifast úr framhaldsskóla): 186.000 kr. grunngjald og 2.280 kr. hver eining sem er metin. Mörg stéttarfélög veita styrki fyrir raunfærnimati og er áhugasömum bent á að athuga það hjá sínu félagi.

Ferlið í raunfærnimati - það sem þú þarft að gera

    1. Skrá þig í raunfærnimat
    2. Mæta á kynningarfund á netinu (hægt að skrá sig að loknum kynningarfundi)
    3. Fylla út skimunarlista
    4. Mæta í viðtal við náms- og starfsráðgjafa, annað hvort á netinu eða í til okkar í Borgartúnið
    5. Skila inn gögnum um fyrra nám og störf
    6. Mæta á sjálfsmatsfund þar sem færnimappa er fyllt út
    7. Mæta á sjálfsmatsfund þar sem matslisti er fylltur út
    8. Mæta í matssamtal / samtöl
    9. Mæta í viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa þar sem farið er yfir niðurstöður og hvaða möguleikar eru færir í framhaldinu.

Ítarlegri kynningar

KYNNINGARMYNDBAND UM RAUNFÆRNIMAT Þátttakandi í raunfærnimati og náms- og starfsráðgjafi segja frá ferlinu.

 Svona lítur ferlið í raunfærnimati út:

Kynning á ferli í raunfærnimati á sjúkraliðabraut

Frekari upplýsingar veitir Helga náms- og starfsráðgjafi Framvegis í síma 581 1900 eða helga@framvegis.is