Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Fara á forsíðu

Skráningaskilmálar

Skilmálar vegna skráninga á námskeið

Athugið að námskeiðsgjald er innheimt að fullu ef skráður þátttakandi mætir ekki á námskeið og tilkynnir ekki um forföll með tölvupósti eða símtali til Framvegis (skraning@framvegis.is)  að minnsta kosti þremur virkum dögum áður en námskeið hefst.  Heimilt er að senda annan þátttakanda í stað þess sem forfallast. Framvegis áskilur sér í öllum tilfellum rétt til að innheimta 5.000 kr í umsýslugjald vegna afboðana.

Greiðsluleiðir eru þrjár

Með greiðslukorti

Ef greitt er með greiðslukorti við skráningu á heimasíðu Framvegis verður skuldfært af korti greiðanda um það leyti sem námskeið hefst.

Með innistæðu hjá Sjúkraliðafélaginu

 

Með millifærslu í heimabanka

Upplýsingar: reikningur Framvegis nr. 1195-26-2113 kt. 420306-0320. Vinsamlegast biðjið um að senda staðfestingu á greiðslu með tölvupósti á:skraning@framvegis.is 

 


Fréttir

Undirbúningur haustannar

Starfsfólk Framvegis undirbýr nú fjölbreytt námsframboð haustannar. Námskeið Framvegis verða að venju spennandi og er stefnt að því að bjóða upp á sígild og sívinsæl námskeið í bland við nýjungar. Bæklingurinn verður sendur í hús í haust en námskeiðin verða birt hér á vefnum bráðlega, fylgist með !

frett_haustonn


Mynd

Framvegis - Miðstöð símenntunar í Reykjavík