Um fjarnámskeið
Framvegis námskeið í beinni
Framvegis býður nú upp á nýja þjónustu sem gerir þátttakendum kleyft að sitja námskeið heima hjá sér.
Allt sem þarf er tölva, sæmileg nettenging, heyrnartól með hljóðnema og þátttakandi heima er fullgildur nemandi á námskeiðinu. Þátttakandi heyrir og sér allt sem fram fer í kennslustofunni kennarann, skjá kennarans, töfluna og samnemendur. Einnig getur hann tekið beinan þátt í kennslunni og umræðum og lagt fram munnlegar fyrirspurnir. Þátttakandi getur einnig sjálfur verið sýnilegur í stofunni ef hann er með vefmyndavél en það er ekki skilyrði. Námskeiðin fara fram á ákveðnum tímum og er kennslan háð því að þátttakendur fylgist með í rauntíma.
Degi áður en kennsla hefst fær þátttakandi senda í tölvupósti krækju sem vísar þátttakanda inn á síðu þar sem hann getur svo fylgst með námskeiðinu þegar kennsla fer fram. Þess vegna er mjög mikilvægt að skrá rétt netfang.
Því miður er ekki hægt að hlaða hugbúnaðinum niður á Mac tölvur.
Hér að neðan er að finna skref fyrir skref leiðbeiningar um hvernig þú tengist fjarnámskeiði í beinni í fyrsta sinn.
Fréttir
Undirbúningur haustannar
Starfsfólk Framvegis undirbýr nú fjölbreytt námsframboð haustannar. Námskeið Framvegis verða að venju spennandi og er stefnt að því að bjóða upp á sígild og sívinsæl námskeið í bland við nýjungar. Bæklingurinn verður sendur í hús í haust en námskeiðin verða birt hér á vefnum bráðlega, fylgist með !

Mynd






