Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Fara á forsíðu

Fréttir

Framvegis í Leónardó verkefni

Framvegis er einn þátttakandi af sex Evrópulöndum í Young Active Methods. Verkefnið snýst um að þróa hvetjandi kennsluaðferðir fyrir unga atvinnuleitendur. Rannsókn var framkvæmd í sumar á stöðu ungra atvinnuleitenda og hefur sú undirbúningsvinna nú verið nýtt í að þróa og yfirfæra kennsluaðferðir á undanförnum mánuðum.

Á vormánuðum munu samstarfsaðilar frá Spáni, Svíþjóð, Austurríki, Prag og Búlgaríu prufukeyra þessar kennsluaðferðir og aðferðir sem þróaðar hafa verið þar vera prufukeyrðar hér.

Útkoman mun verða kennsluaðferðabanki með aðgengilegum aðferðum sem hver sem er getur nálgast á heimasíðu verkefnisins. Sjá nánar http://www.youngactivemethods.com/

logollp_eu_logo


Mynd

Framvegis - Miðstöð símenntunar í Reykjavík