Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Fara á forsíðu

Fréttir

Sjúkraliðanámskeið beint heim til þín

Nú geta sjúkraliðar um allt land setið námskeiðin hjá Framvegis heima hjá sér. Allt sem þarf er tölva og sæmileg nettenging,  heyrnartól með hljóðnema og þátttakandi heima er fullgildur nemandi á námskeiðinu. Þátttakandi heyrir og sér  allt sem fram fer í kennslustofunni kennarann, skjá kennarans, töfluna og samnemendur.  Einnig getur hann tekið beinan þátt í kennslunni og umræðum og lagt fram munnlegar fyrirspurnir.  Þátttakandi getur einnig sjálfur verið sýnilegur í stofunni ef hann er með vefmyndavél en það er ekki skilyrði. Námskeiðin fara fram á ákveðnum tímum og er kennslan háð því  að þátttakendur fylgist með í rauntíma.

Á haustönn 2010 verða þrjú námskeið í boði sem hægt er að sitja með þessum hætti. 
MeltingarsjúkdómarTaugasjúkdómarNæring aldraðra


Mynd

Framvegis - Miðstöð símenntunar í Reykjavík