Fréttir
Tanntæknar í símenntun hjá Framvegis
Framvegis-miðstöð um símenntun býður Félagi tanntækna velkomið í samstarf en frá og með næsta hausti mun Framvegis sinna símenntun og fræðslu fyrir félagið.
Karlar útskrifaðir af námskeiðinu "Kýldu á það"
Þann 18. júní sl. útskrifuðust frá Framvegis hressir karlar á aldrinum 50-65 ára af námskeiðinu "Kýldu á það". Námskeiðið var samstarfsverkefni Framvegis og Verzlunarskóla Íslands og hlaut styrk frá Starfsmenntaráði.
Öldrunarlyfjafræði
Framvegis minnir á öldrunarflyfjafræði í fjarnámskeiði. Námskeiðið er kennt á fjögurra vikna tímabili og lengd námskeiðs samsvarar 20 kennslustundum í staðbundnu námi.
Streita, streitulosun og líkamsbeiting
Enn er opið fyrir skráningu á námskeiðið Streita, streitulosun og líkamsbeiting sem ætlað er starfsfólki í heilbrigðisþjónustu en á námskeiðinu er fjallað um áhrif streitu á heilsu okkar og velferð.
Ritara- og skrifstofustjóranám
Námið er í samvinnu Framvegis og Verzlunarskóla Íslands og er blanda af staðbundnu námi í Verzlunarskólanum og fjarnámi í WebCT kerfinu. Námið er einingabært (22 einingar) og dreifist yfir þrjár annir.
Fréttir
Undirbúningur haustannar
Starfsfólk Framvegis undirbýr nú fjölbreytt námsframboð haustannar. Námskeið Framvegis verða að venju spennandi og er stefnt að því að bjóða upp á sígild og sívinsæl námskeið í bland við nýjungar. Bæklingurinn verður sendur í hús í haust en námskeiðin verða birt hér á vefnum bráðlega, fylgist með !

Mynd






