Fréttir
Jólakveðja
Starfsmenn Framvegis óska öllum gleðilega hátíð og þakkar fyrir samskiptin á árinu sem er að líða.
Útskrift - starfsnám stuðningsfulltrúa

Þessi glæsilegi hópur var að klára 160 stunda Starfsnám stuðningsfulltrúa í dag. Allir sem luku náminu fengu bleika rós í tilefni dagsins.
Nýtt símanúmer
Við erum komin með nýtt símanúmer 5811900
Sjúkraliðanámskeið haustannar
Nú eru námskeiðin að týnast inn á vefinn og verða fljótlega öll komin inn. Hægt er að skrá sig hér á heimasíðunni þegar námskeiðin eru komin inn. Námskeiðsbæklingurinn verður sendur í hús í lok ágústmánaðar.
Námskeið fyrir leiðbeinendur hjá Framvegis
Kennsluaðferðir í fjarkennslu
Markmið: Að námskeiði loknu skilja þátttakendur hvernig fjarkennslubúnaður Framvegis nýtist við kennslu og geta beitt honum sjálfstætt við kennslu. Þar að auki kunna þeir aðferðir til að virkja námsmenn í fjarkenndu námi, þannig að bæði nemendur í kennslustofu og við tölvuna fá tækifæri til að vera virkir í námi sínu.
Lýsing: Fyrri daginn munu þátttakendur fá sendan tengil í tölvupósti eins og þeir séu sjálfir fjarnemendur og tengjast námskeiðinu frá sinni heima-/vinnutölvu. Í þessum hluta verður farið í gegnum það hvernig fjarkennslu hugbúnaðurinn virkar og hvernig hægt er að nota hann.
Seinni daginn verður kennt í staðbundinni kennslu og farið í kennslufræði og aðferðir til þess að virkja námsmenn á fjarkenndum námskeiðum. Sérstaklega verður athyglinni beint að þeirri áskorun að vera með fjarnemendur og nemendur í staðbundinni kennslu á sama tíma. Námskeiðið hentar bæði þeim sem hafa lært kennslufræði og þeim sem eru byrjendur í þeim efnum. Námskeiðið er sérhannað með leiðbeinendur Framvegis í huga og er opið bæði fyrir þá sem hafa kennt í fjarkennslu eða vilja kynna sér betur aðferðir í fjarkennslu.
Námskeiðið stendur leiðbeinendum Framvegis til boða að kostnaðarlausu og eru áhugasamir vinsamlegast beðnir um að skrá sig í tölvupósti á skraning@framvegis.is
Leiðbeinendur: John Yeoman tæknistjóri hjá Tölvuskólanum Isoft-Þekkingu og Hróbjartur Árnason Lektor í kennslufræði fullorðinna, HÍ.
Tími:
19. Janúar kl. 16-17 (fjarkennsla)
20. janúar kl. 16-18 (staðbundin kennsla í Skeifunni 11b)
Fullt á námskeið fyrir leiðbeinendur
Nú er orðið fullbókað á námskeið fyrir leiðbeinendur. Mikill áhugi er hjá sjúkraliðum að fá að sitja þetta námskeið og vonumst við til þess að geta haldið annað í vor.
Námskeið fyrir leiðbeinendur sjúkraliðanema
Haldið dagana 17. nóvember kl. 17-20 og 19. nóvember kl. 15-18
Markmið námskeiðsins er að búa starfandi sjúkraliða undir að leiðbeina sjúkraliðanemum í starfsþjálfun.
Þeir sjúkraliðar sem eru að leiðbeina, en hafa ekki setið námskeiðið, ganga fyrir.
Deildarstjórar sækja um fyrir starfandi sjúkraliða á sinni deild með því að senda tölvupóst á elsa@framvegis.is
Vinsamlegast takið fram eftirfarandi:
Nafn sjúkraliða
Kennitölu
Heimilisfang, póstnúmer og staður
Sími, GSM
Netfang
Vinnustaður, deild
Fullt í fjarnám. Sjá nánar um tilhögun fjarkennslu hér.
Menntamálaráðuneytið styrkir námskeiðið og þátttakendur fá greitt fyrir að sitja það. Þátttakandi á leiðbeinendanámskeiði skilar verktakareikningi fyrir 15.000 kr. á skrifstofu Framvegis að námskeiði loknu til þess að fá greiðslu fyrir setu á námskeiðinu. Hægt er að nálgast blokkir með slíkum reikningum í öllum ritfangaverslunum. Upplýsingar sem verða að koma fram á reikningnum er nafn, kennitala, heimilisfang og símanúmer þess er sendir reikninginn (þátttakandi á námskeiðinu). Það er einnig mjög mikilvægt að í reitnum Greiðsluform merki þátttakandi við: „Lagt inn á bankareikning“ og láti reikningsnúmer það fylgja er viðkomandi vill að Framvegis leggi greiðsluna fyrir setu á námskeiðinu inn á.
Staður: Framvegis Skeifunni 11b
Ný heimasíða Framvegis
Ný og glæsileg heimasíða Framvegis hefur verið opnuð.
Við vonum að viðskiptavinir Framvegis finni allar upplýsingar um námskeið og gangi vel að nota nýtt skráningarkerfi síðunnar. Skráningarkerfið virkar þannig að þátttakandi nýskráir sig í fyrsta sinn, fyllir inn allar upplýsingar um sig og býr sér til sitt eigið lykilorð. Þetta auðveldar alla skráningu seinna meir þar sem aðeins er beðið um kennitölu og lykilorð.
Vinsamlegast hafið samband í 5814914 ef einhverjar spurningar vakna.
Sjúkraliðanámskeið beint heim til þín
Nú geta sjúkraliðar um allt land setið námskeiðin hjá Framvegis heima hjá sér. Allt sem þarf er tölva og sæmileg nettenging, heyrnartól með hljóðnema og þátttakandi heima er fullgildur nemandi á námskeiðinu. Þátttakandi heyrir og sér allt sem fram fer í kennslustofunni kennarann, skjá kennarans, töfluna og samnemendur.
Mynd







