Erlent samstarf
Framvegis hefur síðastliðin tvö ár tekið þátt í Leónardóverkefni ásamt fimm öðrum Evrópulöndum: Póllandi, Rúmeníu, Bretlandi, Svíþjóð og Spáni. Verkefnið ber heitið Providence sem er stytting á Providing competences (to workforce).
Verkefnið gekk út á kynnast starfsemi samstarfsaðilanna með það að markmiði að hver samstarfsaðili noti þá þekkingu til þess að efla og auka gæði í þeirri starfstengdu menntun sem þeir bjóða upp á í sínu heimalandi.
Þátttakendur í verkefninu koma allir frá afar ólíkum fræðslustofnunum, t.d. símenntunarmiðstöðvum, verkmenntaskólum, vinnumálastofnunum, en hafa það sameiginlegt að bjóða fullorðnu fólki upp á símenntun og starfsmenntun. Afurð verkefnisins er heimasíða þar sem allir þátttakendur verkefnisins birta greinar þar sem borin eru saman menntakerfi og menntastofnanir þessara sex Evrópulanda.
Nú er verkefninu lokið og er hægt að skoða hér vinstra megin bækling sem við unnum þar sem teknir eru saman helstu punktarnir um það hvað okkur fannst vera lærdómsríkast í framsetningu og uppbyggingu starfsmenntar hjá samstarfslöndunum. Þetta er því kallað "Good Practice Guide" og gerði hver samstarfsaðili slíkan bækling.
Hægt er að nálgast ýtarlegri greinagerð um lærdómspunktana sem og nánari upplýsingar um menntakerfi, starfsmenntun og fullorðinsfræðslu landanna fimm á heimasíðu verkefnisins.
Fréttir
Undirbúningur haustannar
Starfsfólk Framvegis undirbýr nú fjölbreytt námsframboð haustannar. Námskeið Framvegis verða að venju spennandi og er stefnt að því að bjóða upp á sígild og sívinsæl námskeið í bland við nýjungar. Bæklingurinn verður sendur í hús í haust en námskeiðin verða birt hér á vefnum bráðlega, fylgist með !

Tengd skjöl
Mynd


Good Practice Guide



